Könnun úr námskeiðsmati: Tilraunasálfræði 2026

Figure 1: Aldursdreifing þátttakenda í könnuninni
Figure 2: Mæting í umræðu- og verkefnatíma
Figure 3: Viðhorf til allra þátta námskeiðsins (Hlutfall svara og meðalskor). Spurningar eru styttar til að koma þeim fyrir á myndriti.

Skriflegar athugasemdir:

Hér eru athugasemdirnar sem geymdu gagnrýnar ábendingar eða annað sem ég tel rétt að sýna stúdentum. Athugasemdir sem eru bara jákvæðar eru ekki hafðar með, þó ég kunni auðvitað að meta þær.

Athugasemdirnar eru í flestum tilvikum styttar eða einfaldaðar, til að tryggja betur að þær megi á engan hátt tengja við nokkurn svaranda.

Athugasemdir um skipulag námskeiðsins, svo sem námskeiðsáætlun, dagskrá kennslu, prófa og verkefna, eða annað því tengt.

  • Vantar fyrirlestra til þess að mæta í. Betra að mæta á fjarfund en að horf á upptöku og það hjálpar með skipulag. (x2)
  • Vægi rannsóknarskýrslu of lítið.
  • Hefði verið betra að fá persónulegar athugasemdir um smáverkefnin.
  • Seinna misserisprófið mun erfiðara en það fyrra.
  • Misskilningur á efni til misserisprófs og bara hægt að sjá það í tilkynningum.
  • Einhver sem er að taka námskeið aftur segir að misserisprófin séu stærsti kosturinn við nýtt fyrirkomulag.
  • Prófin stressandi þegar svona mikið er undir

Athugasemdir um umræðu- og verkefnatíma námskeiðsins

  • Gat ekki mætt í umræðutíma og hefði viljað fá að hlusta á umræðurnar eftirá.
  • Finnst ósanngjarnt að fá ekki tækifæri á þessum 5%.
  • Óþægilegt að hafa TIS á Teams, á meðan annað er á zoom.
  • Alltof margir sem sögðu ekkert eða gerðu ekkert í hópverkefnum.
  • Umræðutímar of langir og óheppilegt að þeir séu á föstudögum.
  • Hefðu mátt vera fleiri fyrirspurnir/umræður um námsefnið
  • Umræðutímar á “vinnutíma”

Athugasemd um kennsluefni námskeiðs, svo sem kennslubækur, fyrirlestra og glærur

  • Væri gott að fá meira af sjónrænum útskýringum á hugtökum.
  • væri gott að fá æfingapróf eftir hvern fyrirlestur.
  • HTTAWT er óþafa viðbót sem eykur álagið í námskeiðinu.
  • Fyrirlestrar of langir. Hefði viljað hafa þá mun styttri.
  • Of mikið að gera í báðum klásusnámskeiðunum.
  • Bækurnar eru dýrar

Athugasemdir um annað

  • Rannsóknarskýrslan hefur of lítið vægi (5%). Væri betra ef það væru 10%.
  • Skil ekki tengingu við HTTAWT
  • HTTAWT mikil heimspeki sem á ekki við í sálfræði