Umræðutímaverkefni 8 - Þitt eigið… lokapróf

Byrjum tíman á því að rifja upp grein úr einu virtatasta vísindatímariti heims, frá því í nóvember, 1960.

Heimild: Von Foerster, H., Mora, P. M., & Amiot, L. W. (1960). Doomsday: Friday, 13 November, AD 2026: At this date human population will approach infinity if it grows as it has grown in the last two millenia. Science, 132(3436), 1291-1295.

Þetta kemur málinu ekkert við, en getur komið sér vel að vita, ef Foerster, Mora og Amiot hafa rétt fyrir sér.

Smíðum lokapróf

Í þessum tíma verður verkefni ykkar að búa til prófspurningar sem þið getið ímyndað ykkur að kæmu á lokaprófi í tilraunasálfræði.

Hver hópur býr til eina spurningu á hvern hópmeðlim. Þið getið unnið að þeim öllum saman, eða skipt með ykkur verkum. En allir hópar ættu að fara yfir allar spurningar, áður en þær eru sendar inn.

Spurningarnar eiga að vera á eftirfarandi formi:

Spurningastofn

Svarmöguleiki 1

Svarmöguleiki 2

Svarmöguleiki 3

Einn svarmöguleiki á að vera merktur með *, sem gefur til kynna að það sé rétt svar.

Þið skilið prófspurningunum ykkar í Word skjali hér: https://forms.cloud.microsoft/e/cX0Nf4ZUsD

Hver hópur þarf aðeins að skila einu skjali með öllum spurningum. Reynið að skrifa spurningar upp úr mismunandi köflum kennslubóka, svo að prófið verði ekki of einsleitt.

Keppum í prófagerð og tilraunasálfræðilegri þekkingu

Kennari afritar spurningarnar inn í prófaham á Microsoft Forms og býr til próf úr öllum spurningunum.

Þið svarið prófinu eftir bestu getu, enda verður hópurinn með hæstu meðaleinkunnina krýndur sigurvegari í flokknum tilraunasálfræðileg þekking.

En það er annar titill, sem er kannski ennþá mikilvægari. Sá hópur sem býr til bestu spurningarnar, eða þær spurningar sem greina best á milli stúdenta (hafa hæsta aðgreinistuðulinn), fær titilinn prófagerðarmeistarar.

Hvernig eru góðar spurningar í krossaprófi

Próf, hvort sem þau eru sálfræðileg próf eða próf í námi, gera jafnan mest gagn ef þau eru aðgreinandi, þ.e. að þau greini vel á próftaka. Kvíðapróf þarf að gera skýran greinamun á þeim sem hafa engan, vægan og alvarlegan kvíða. Próf í skólum þurfa að gera greinamun á þeim sem hafa mikla, miðlungs og litla þekkingu/færni/leikni í því sem verið er að prófa úr.

Í okkar tilfelli erum við aðeins að spá í nokkrum spurningum, en ekki heilu prófi. Því einbeitum við okkur að aðgreinistuðli, sem er mælikvarði á hversu vel einstaka spurningar greina á milli próftaka.

Spurningar með háan aðgreinistuðul eru oftast miðlungsþungar spurningar. Ef spurning er of létt, geta langflestir svarað henni rétt og það verður lítil aðgreining (gólfhrif). Ef spurning er of erfið geta mjög fáir svarað henni rétt og það verður lítil aðgreining (rjáfurhrif). Ef spurning er miðlungserfið, er líklegt að þeir sem hafa mesta þekkingu svari rétt, en þeir sem eru verr undirbúnir velji rangt svar.
Og til að fá þetta til að ganga upp, þarf auðvitað að passa upp á að spurning sé ekki ruglingslega orðuð og að svarmöguleikarnir séu trúverðugir.