Umræðutímaverkefni 7 - m. svörum og endurgjöf

Spurning 1

Myndritið (Mynd 1) sýnir niðurstöður úr tilraun á áhrifum svefnleysis og koffíns (120 mg) á aksturshæfni. Aksturshæfni var aðgerðabundin sem fjöldi villna í erfiðri akstursþraut í ökuhermi. Hvaða ályktun má draga um meginhrif og samvirkni út frá myndritinu?

Svarmöguleikar:

  1. Það eru meginhrif af svefni, engin meginhrif af koffíni og engin samvirkni.

  2. Það eru engin meginhrif, aðeins samvirkni á milli svefns og koffíns.

  3. Það eru meginhrif af bæði svefni og koffíni og samvirkni.

  4. Það eru meginhrif af koffíni, en engin samvirkni.

Mynd 1

Spurning 2

Rannsakandi notar innanhópasnið til að mæla viðbragðstíma í sex lotum. Myndin (Mynd 2) sýnir framvinduskekkju (progressive error) hópsins yfir þessar sex lotur. Ath. þetta eru EKKI niðurstöður tilraunar, aðeins sjálf framvinduskekkjan. Hvaða ferlar eru líklegastir til að útskýra þetta mynstur?

Svarmöguleikar:

  1. Þreytuhrif (fatigue effect).

  2. Æfingahrif (practice effect).

  3. Æfingahrif og þreytuhrif.

  4. Rjáfurhrif (ceiling effect) í byrjun og gólfhrif (floor effect) í lokin.

Mynd 2

Spurning 3

Gagnasafn frá ónefndum grunnskóla sýnir tengsl grænmetisneyslu og einkunna á samræmdum prófum (sjá Mynd 3). Skólastjórinn ákveður að breyta matseðli skólans í veganfæði, enda muni það vera lykillinn að því að hækka einkunnir nemenda til framtíðar. Kokkurinn í skólaeldhúsinu mótmælir þessari ákvörðun harðlega og segir rök skólastjórnas gölluð.

Settu þig í spor aðstoðarskólastjóra, sem á úrslitaatkvæði um hvort ákvörðunin verði tekin. Hvorum ertu sammála?

Svarmöguleikar:

  1. Skólastjóranum

  2. Kokkinum

Mynd 3

Spurning 4

Mælt er hvort bakgrunnstónlist eða þögn (Frumbreyta 1) hafi áhrif á lesskilning, og hvort þau áhrif séu ólík hjá innhverfum (introverteted) og úthverfum (extroverted) nemendum (Frumbreyta 2). Mynd 4 sýnir niðurstöðurnar, þar sem hærra skor þýðir meiri lesskilningur. Hvað er rétt túlkun á niðurstöðunum?

Svarmöguleikar:

  1. Tónlist hefur jákvæð áhrif á lesskilning

  2. Innhverfir hafa betri lesskilning en úthverfir.

  3. Innhverfir standa sig betur í þögn, en úthverfir betur með tónlist.

  4. Það eru meginhrif af umhverfi OG samvirkni umhverfis og persónuleika.

Mynd 4

Spurning 5

Í tilraun, þar sem nemendur leysa stöðluð próf í kennslustofu, er kannað er hvort hitastig í stofunni (Kalt [17°C] eða Heitt [27°C]) og lengd prófs (1 klst vs. 3 klst) hafi áhrif á einbeitingu. Einbeiting var mæld á kvarða þar sem meiri einbeiting er sýnd með hærri tölum. Niðurstöðurnar eru sýndar á Mynd 5. Hvaða túlkun á við um þessa niðurstöðu?

Svarmöguleikar:

  1. Lengd prófsins skipti mestu máli, en hitastigið litlu.

  2. Það eru skýr samvirknihrif á milli lengdar prófs og hitastigs þegar kemur að mælingum á einbeitingu.

  3. Báðar frumbreytur hafa áhrif á einbeitingu, en þau áhrif eru óháð.

  4. Það var betra fyrir alla þátttakendur að leysa próf í kulda.

Mynd 5

Spurning 6

Áhrif tveggja meðferða (Hugræn atferlismeðferð; HAM, og Nuddi) sem ætlað er að draga úr kvíða, mælt hjá sjúklingum með vægan kvíða annars vegar og alvarlegan kvíða hins vegar. Fylgibreytan er bati, þar sem hærri tölur þýða að meira hefur dregið úr kvíða. Mynd 6 sýnir niðurstöðu rannsóknarinnar. Hvaða túlkun á best við?

Svarmöguleikar:

  1. Nudd haði engin áhrif á kvíða.

  2. Hugsanlega hafa báðar meðferðirnar notagildi við meðhöndlun kvíða, en það skortir samanburðarhóp til að geta fullyrt um það.

  3. Það voru meginhrif af Nuddi og meginhrif af HAM og samvirknihrif Nudds og HAM.

  4. Nudd gerði illt verra hjá þeim sem greindust með alvarlegan kvíða.

Mynd 6

Spurning 7

Kannað er hvort þyngd lóða í bekkpressu (10 kg vs. 50 kg) hafi áhrif á fjölda endurtekninga hjá tveimur hópum: óvönum og afreksfólki í kraftlyftingum. Hver þátttakandi hafði 20 sekúndur til að ná sem flestum lyftum. Niðurstaðan er sýnd í Mynd 7. Hvaða túlkun á best við?

Svarmöguleikar:

  1. Það er mælist samvirkni hóps og þyngdar.

  2. Þyngd skiptir ekki máli í hópi afreksfólks.

  3. Það eru engin meginhrif af breytunni hópur.

  4. Tíminn er of langur til að fá áreiðanlega niðurstöðu.

Mynd 7

Spurning 8

Metin eru áhrif skammtastærðar nýs svefnlyfs (Engin [Lyfleysa], Lítill, Stór) og kyns (Karlar, Konur) á lengd djúpsvefns. Niðurstaðan sést á Mynd 8, þar sem meðaltal mínútna djúpsvefns í hverjum hópi er sýnt á y-ás. Hvaða túlkun er best?

Svarmöguleikar:

  1. Lítill skammtur er besti skammturinn.

  2. Stór skammtur er besti skammturinn.

  3. Það eru meginhrif af kyni og skammtastærð, en engin samvirkni.

  4. Það er óvíst hvort taka ætti tillit til kyns, þegar ávísa á þessu svefnlyfi.

Mynd 8

Svör

Spurning 1

Réttasta svarið:

Það eru meginhrif af bæði svefni og koffíni og samvirkni.

Þátttakendur gera að meðaltali fleiri villur eftir minni svefn, sem sýnir meginhrif svefns. Þeir gera að meðaltali færri villur með koffíni en án þess, sem sýnir meginhrif koffíns. Línurnar eru ekki samsíða, því áhrif koffíns eru meiri eftir svefnskerðingu en eftir nægan svefn. Það sýnir samvirkni svefns og koffíns.

Spurning 2

Réttasta svarið:

Æfingahrif og þreytuhrif.

Frammistaða breytist fyrst vegna þess að þátttakendur öðlast æfingu og venjast verkefninu. Þegar lotunum fjölgar getur þreyta hins vegar farið að hafa áhrif og unnið gegn æfingaráhrifunum. Mynstur sem breytir um stefnu yfir loturnar getur því bent til þess að bæði æfing og þreyta komi við sögu.

*Athugið að af því að mælingin er svartími, þar sem styttri tími væri venjulega til marks um betri árangur, er þetta myndrit svolítið villandi. Ég hefði átt að snúa því við, eða útskýra kvarðan. En eina svarið sem getur passað við þetta eru æfinga- og þreytuhrif.

Spurning 3

Réttasta svarið:

Kokkinum.

Myndritið sýnir jákvæða fylgni milli grænmetisneyslu og einkunna, en fylgni sýnir ekki að grænmetisneysla orsaki hærri einkunnum. Aðrar breytur, svo sem félagsleg staða, svefn, almennar heilsuvenjur, stuðningur heima eða námsvenjur, gætu haft áhrif á hvort tveggja.

Gögnin sýna heldur ekki sérstaklega áhrif veganfæðis. Meiri grænmetisneysla er ekki það sama og að fjarlægja allar dýraafurðir úr mataræðinu. Ákvörðun skólastjórans byggist því á óréttmætri orsakaályktun og gengur lengra en gögnin leyfa. Áður en farið er í meiriháttar breytingar á matseðli þyrfti að rannsaka málið betur. Látum það liggja á milli hluta að ýmsar góðar ástæður (aðrar en orsakasamband grænmetisneyslu og einkunna) gætu verið fyrir því að taka upp veganfæðu í skólum, bæði siðferðilegar og heilsutengdar. Sú umræða kemst ekki fyrir í þessu ímyndaða dæmi.

Spurning 4

Réttasta svarið:

Innhverfir standa sig betur í þögn en úthverfir betur með tónlist.

Áhrif hljóðumhverfisins eru ólík eftir persónuleika. Innhverfir sýna meiri lesskilning í þögn en úthverfir sýna meiri lesskilning með tónlist. Þetta er samvirkni, því áhrif tónlistar ráðast af því hvort þátttakendur eru innhverfir eða úthverfir.

Krossandi línur eru skýrt merki um samvirkni í þessu dæmi. Ef meðaltölin yfir persónuleikahópana og hljóðumhverfin jafnast út eru ekki meginhrif, þrátt fyrir skýra samvirkni. Ekki er því rétt að segja almennt að tónlist bæti lesskilning.

Spurning 5

Réttasta svarið:

Báðar frumbreytur hafa áhrif á einbeitingu, en þau áhrif eru óháð.

Einbeiting er að meðaltali mismunandi eftir hitastigi og einnig eftir lengd prófsins. Það eru því meginhrif af báðum frumbreytum. Línurnar eru samsíða, sem sýnir að áhrif hitastigs eru jafnmikil við báðar próflengdir. Engin samvirkni er því milli hitastigs og próflengdar.

Samsíða línur benda almennt til engrar samvirkni. Línur þurfa hins vegar ekki að krossast til að sýna samvirkni. Allar greinilega ósamsíða línur geta bent til þess að áhrif annarrar breytunnar ráðist af stigi hinnar.

Síðasta svarið á heldur ekki við, því það vísar til allra þátttakenda, en myndritið er aðeins sýna meðaltöl. Því gætu alveg verið einhverjir sem stóðu sig betur í hita en kulda, þó að meðaltölin sýni skýrt að kuldinn sé almennt betri.

Spurning 6

Réttasta svarið:

Hugsanlega hafa báðar meðferðirnar notagildi við meðhöndlun kvíða, en það skortir samanburðarhóp til að geta fullyrt um það.

ylgibreytan er bati og hærra gildi merkir að meira hafi dregið úr kvíða. Jákvætt bataskor þýðir því einhverja bætingu, jafnvel þótt skorið sé lágt. Lágt jákvætt skor sýnir ekki að meðferð hafi gert kvíðann verri.

Án hóps sem fær enga meðferð, er á biðlista eða fær viðeigandi samanburðarmeðferð er ekki hægt að vita hvort breytingin stafar af meðferðinni. Bati gæti einnig tengst tíma, væntingum, athygli meðferðaraðila, náttúrulegum sveiflum eða afturhvarfi að meðaltali.

Ath. að þriðji svarmöguleiki ruglar saman frumbreytum og stigum frumbreytna. Það geta aldre verið meginhrif eða samvirkni á milli stiga sömu frumbreytunnar. Samvirkni er á milli frumbreytnanna sjálfra, þ.e. niðurstöður fyrir stig einnar frumbreytu eru háð (breytileg eftir) stigum annarrar frumbreytu.

Spurning 7

Réttasta svarið:

Það mælist samvirkni hóps og þyngdar.

Þyngd lóðanna hefur mismunandi áhrif á fjölda endurtekninga eftir reynslu þátttakenda. Hjá óvönum fækkar endurtekningum þegar þyngdin eykst, en hjá afreksfólki er breytingin minni eða engin. Áhrif þyngdar ráðast því af reynsluhópi, sem er skilgreining á samvirkni.

Hérna gæti svarið “Þyngd skiptir ekki máli í hópi afreksfólks” virst jafn rétt og það fyrsta. En sú fullyrðing er of almenn. Þessar niðurstöðu hlýtur að mega skýra út frá rjáfurhrifum: verkefnið var ekki nógu erfitt (lóðin ekki nógu þung) fyrir afrekshópinn.

Spurning 8

Réttasta svarið:

Það er óvíst hvort taka ætti tillit til kyns þegar svefnlyfinu er ávísað.

Myndritið bendir til þess að skammtastærð tengist lengd djúpsvefns, en áhrif skammtsins virðast ekki vera nákvæmlega eins hjá körlum og konum. Það bendir til mögulegrar samvirkni kyns og skammtastærðar. Því er ekki rétt að velja svar sem fullyrðir að engin samvirkni sé til staðar.

Myndritið eitt nægir þó ekki til að ákveða hvort kyn eigi að ráða lyfjaávísun. Til þess þyrfti meðal annars tölfræðilegt próf á samvirkni, upplýsingar um óvissu mælinganna, úrtaksstærð, aukaverkanir og klínískt mikilvægi munarins.

Stóri skammturinn getur gefið lengstan djúpsvefn í myndritinu án þess að vera sjálfkrafa „besti skammturinn“. Besti skammtur ræðst einnig af öryggi, aukaverkunum, svefngæðum og virkni daginn eftir.

Hér var hugmyndin að stúdentar hugsi um mögulegar blendnibreytur sem gætu haft áhrif á niðurstöðu. Sú sem breyta sem liggur kannski beinast við er líkamsþyngd. Karlar eru að meðaltali stærri og þyngri en konur. Því er hugsanlegt að mynstur á borð við það sem myndin sýnir (þ.e. þessi mismunandi viðbrögð kynja við lyfinu, myndi hverfa eða breytast, ef tekið væri tillit til líkamsþyngar. Þyngd er breyta sem skiptir oft töluverðu máli þegar kemur að lyfjagjöf. Því met ég áðurnefnt svar best, þ.e. að út frá þessum gögnum sé enn óvissa um hvort kyn sé breyta sem skipti máli. Sömuleiðis gæti skipt máli að í úrtakinu er djúpsvefn karla umtalsvert styttri við grunnlínu (lyfleysuhópur). Það er önnur breyta sem gæti þurft að taka tillit til, áður en endanleg afstaða er tekin til gagnanna.

Mat á hópasvörum - Samantekt Copilot með smá breytingum frá kennara

Það sem hóparnir kunnu best

  • Að greina jákvæða fylgni frá orsakasambandi.

  • Að koma auga á samvirkni þegar áhrifin fara í gagnstæðar áttir.

  • Að tengja samsíða línur við meginhrif (enga samvirkni).

  • Að greina æfingahrif og þreytuhrif sem ógn í endurteknum mælingum.

  • Að sjá hvers vegna samanburðarhópur án meðferðar getur verið nauðsynlegur.

Það sem þarf helst að æfa betur

  1. Að lesa merkingu y-áss áður en línur eru túlkaðar.

  2. Að greina meginhrif með jaðarmeðaltölum (marginal means), ekki einum samanburði (sjá fyrirlestur + glærur 29 - 36 úr kafla 11 og bls 285 í Gravetter og fél.) .

  3. Að skilgreina samvirkni sem mismunandi áhrif, ekki einfaldlega krossandi línur.

  4. Að rökstyðja svar með gögnunum frekar en að segja að það sé augljóst.

  5. Að greina milli jákvæðs bata, engrar breytingar og raunverulegrar vers­nunar.

  6. Að halda lýsingu myndritsins aðskildri frá klínískum eða hagnýtum ráðleggingum.

  7. Að ganga úr skugga um að skýringin stangist ekki á við valinn svarmöguleika.

Stutt endurgjöf sem mætti sýna stúdentum

Í heild gekk vel að greina fylgni frá orsök og að koma auga á samvirkni. Næsta skref er að gera rökstuðninginn nákvæmari. Samvirkni merkir að áhrif einnar frumbreytu ráðast af stigi annarrar, ekki aðeins að línur krossist. Meginhrif þarf að meta með meðaltölum yfir stig hinnar breytunnar. Lesið jafnframt alltaf hvað hærra skor á y-ás merkir áður en talað er um bata, versnun, æfingu eða þreytu (í þessu tilviki eiga síðustu atriðin líka við um kennara…). Rétt svar með röngum rökstuðningi sýnir að niðurstaðan fannst, en ekki endilega skilning.