Umræðutímaverkefni 7
Spurning 1
Myndritið (Mynd 1) sýnir niðurstöður úr tilraun á áhrifum svefnleysis og koffíns (120 mg) á aksturshæfni. Aksturshæfni var aðgerðabundin sem fjöldi villna í erfiðri akstursþraut í ökuhermi. Hvaða ályktun má draga um meginhrif og samvirkni út frá myndritinu?
Svarmöguleikar:
Það eru meginhrif af svefni, engin meginhrif af koffíni og engin samvirkni.
Það eru engin meginhrif, aðeins samvirkni á milli svefns og koffíns.
Það eru meginhrif af bæði svefni og koffíni og samvirkni.
Það eru meginhrif af koffíni, en engin samvirkni.
Spurning 2
Rannsakandi notar innanhópasnið til að mæla viðbragðstíma í sex lotum. Myndin (Mynd 2) sýnir framvinduskekkju (progressive error) hópsins yfir þessar sex lotur. Ath. þetta eru EKKI niðurstöður tilraunar, aðeins sjálf framvinduskekkjan. Hvaða ferlar eru líklegastir til að útskýra þetta mynstur?
Svarmöguleikar:
Þreytuhrif (fatigue effect).
Æfingahrif (practice effect).
Æfingahrif og þreytuhrif.
Rjáfurhrif (ceiling effect) í byrjun og gólfhrif (floor effect) í lokin.
Spurning 3
Gagnasafn frá ónefndum grunnskóla sýnir tengsl grænmetisneyslu og einkunna á samræmdum prófum (sjá Mynd 3). Skólastjórinn ákveður að breyta matseðli skólans í veganfæði, enda muni það vera lykillinn að því að hækka einkunnir nemenda til framtíðar. Kokkurinn í skólaeldhúsinu mótmælir þessari ákvörðun harðlega og segir rök skólastjórnas gölluð.
Settu þig í spor aðstoðarskólastjóra, sem á úrslitaatkvæði um hvort ákvörðunin verði tekin. Hvorum ertu sammála?
Svarmöguleikar:
Skólastjóranum
Kokkinum
Spurning 4
Mælt er hvort bakgrunnstónlist eða þögn (Frumbreyta 1) hafi áhrif á lesskilning, og hvort þau áhrif séu ólík hjá innhverfum (introverteted) og úthverfum (extroverted) nemendum (Frumbreyta 2). Mynd 4 sýnir niðurstöðurnar, þar sem hærra skor þýðir meiri lesskilningur. Hvað er rétt túlkun á niðurstöðunum?
Svarmöguleikar:
Tónlist hefur jákvæð áhrif á lesskilning
Innhverfir hafa betri lesskilning en úthverfir.
Innhverfir standa sig betur í þögn, en úthverfir betur með tónlist.
Það eru meginhrif af umhverfi OG samvirkni umhverfis og persónuleika.
Spurning 5
Í tilraun, þar sem nemendur leysa stöðluð próf í kennslustofu, er kannað er hvort hitastig í stofunni (Kalt [17°C] eða Heitt [27°C]) og lengd prófs (1 klst vs. 3 klst) hafi áhrif á einbeitingu. Einbeiting var mæld á kvarða þar sem meiri einbeiting er sýnd með hærri tölum. Niðurstöðurnar eru sýndar á Mynd 5. Hvaða túlkun á við um þessa niðurstöðu?
Svarmöguleikar:
Lengd prófsins skipti mestu máli, en hitastigið litlu.
Það eru skýr samvirknihrif á milli lengdar prófs og hitastigs þegar kemur að mælingum á einbeitingu.
Báðar frumbreytur hafa áhrif á einbeitingu, en þau áhrif eru óháð.
Það var betra fyrir alla þátttakendur að leysa próf í kulda.
Spurning 6
Áhrif tveggja meðferða (Hugræn atferlismeðferð; HAM, og Nuddi) sem ætlað er að draga úr kvíða, mælt hjá sjúklingum með vægan kvíða annars vegar og alvarlegan kvíða hins vegar. Fylgibreytan er bati, þar sem hærri tölur þýða að meira hefur dregið úr kvíða. Mynd 6 sýnir niðurstöðu rannsóknarinnar. Hvaða túlkun á best við?
Svarmöguleikar:
Nudd haði engin áhrif á kvíða.
Hugsanlega hafa báðar meðferðirnar notagildi við meðhöndlun kvíða, en það skortir samanburðarhóp til að geta fullyrt um það.
Það voru meginhrif af Nuddi og meginhrif af HAM og samvirknihrif Nudds og HAM.
Nudd gerði illt verra hjá þeim sem greindust með alvarlegan kvíða.
Spurning 7
Kannað er hvort þyngd lóða í bekkpressu (10 kg vs. 50 kg) hafi áhrif á fjölda endurtekninga hjá tveimur hópum: óvönum og afreksfólki í kraftlyftingum. Hver þátttakandi hafði 20 sekúndur til að ná sem flestum lyftum. Niðurstaðan er sýnd í Mynd 7. Hvaða túlkun á best við?
Svarmöguleikar:
Það er mælist samvirkni hóps og þyngdar.
Þyngd skiptir ekki máli í hópi afreksfólks.
Það eru engin meginhrif af breytunni hópur.
Tíminn er of langur til að fá áreiðanlega niðurstöðu.
Spurning 8
Metin eru áhrif skammtastærðar nýs svefnlyfs (Engin [Lyfleysa], Lítill, Stór) og kyns (Karlar, Konur) á lengd djúpsvefns. Niðurstaðan sést á Mynd 8, þar sem meðaltal mínútna djúpsvefns í hverjum hópi er sýnt á y-ás. Hvaða túlkun er best?
Svarmöguleikar:
Lítill skammtur er besti skammturinn.
Stór skammtur er besti skammturinn.
Það eru meginhrif af kyni og skammtastærð, en engin samvirkni.
Það er óvíst hvort taka ætti tillit til kyns, þegar ávísa á þessu svefnlyfi.