Tæknilegar upplýsingar um MST tilraun
Helstu upplýsingar um tilraun, fyrir Aðferð í rannsóknarskýrslu
!!! Þessar upplýsingar á ekki að afrita og setja inn í skýrslu, heldur á að skrifa skýrsluna og nota þessar upplýsingar til að fylla inn í texta á viðeigandi stað. Skoðið dæmi um skýrslu í 16. kafla bókar, eða bara í fagtímaritum í sálfræði, til að skilja hvernig eðlilegt er að skrifa aðferðakafla í skýrslum. !!!
Þátttakendur
- Þátttakendur voru stúdentar í námskeiðunum Tilraunasálfræði og Skynjunarsálfræði
- Gagnasöfnun fór fram í staðlotu stúdenta, dagana 12. og 14. október, 2026
- Stúdentar hafa ekki aðgang að kyni og aldri þátttakanda við úrvinnslu gagnanna.
- 99 stúdentar tóku þátt í rannsókninni
- 14 veittu ekki samþykki fyrir notkun gagna sinna og var þá eytt úr gagnasafninu
- Einn þátttakandi var útilokaður vegna litblindu
- [leiðrétt: þessi þátttakandi gaf heldur ekki samþykki og því er í raun óþarfi að nefna hann. Það eru gögn frá 85 þátttakendum í skránni ykkar og 85 + 14 + 1 = 100 (en ekki 99). Ástæðan er að sá litblindi er talin tvisvar (sem litblindur og vegna skorts á samþykki). Því skiptir ekki máli hvort litblindan er nefnd eða ekki. Þeim upplýsingum hefur verður komið til aðstoðarkennara].
- Hugsanlegt er að fjarlægja þurfi fleiri þátttakendur úr gagnasafninu. Slík ákvörðun er tekin við skoðun gagna
Áreiti
Í MST tilrauninni (Mnemonic Similarity Task; Stark et al., 2019) voru notaðar ljósmyndir af github síðu Craig E.L. Stark (https://github.com/celstark/MST) þar sem öll ljósmyndasöfn úr mismunandi MST prófum eru aðgengileg. Í tilrauninni var notað safnið Set C. Í því eru myndir af hversdagslegum hlutum, svo sem verkfærum, skrautmunum, leikföngum, raftækjum og fleiru.
Í myndasafninu eru 128 myndir sem ætlaðar eru í námsfasa (learning phase) tilraunar.
Í próffasanum (test phase) eru notaðar 192 ljósmyndir.
64 sem eru myndir sem hafa þegar birst í námsfasanum
64 eru nýjar myndir, ótengdar þeim sem birtust í námsfasanum
64 eru tálbeitumyndir, sem líkjast myndum úr námsfasanum, en eru frábrugðnar að einhverju leyti. Þessar myndir eru flokkaðar í fimm flokka, eftir því hversu erfitt er að aðgreina þær frá myndunum úr námsfasanum, þar sem flokkur 1 táknar mest líkindi, en flokkur 5 minnst líkindi.
Raunstærð ljósmyndinna er ekki þekkt, þar sem þátttakendur leystu verkefnið á eigin tölvur sem hafa mismunandi skjái. Myndastærðin var fest þannig að ferningslaga myndskrá var alltaf 35% af hæð tölvuskjás.
Ljósmyndirnar birtast alltaf á hvítum bakgrunni [rgb = 255, 255, 255]
Allar leiðbeiningar birtust í svörtum bókstöfum [rgb = 0, 0, 0] í leturgerðinni Arial.
Tækjabúnaður
Þátttakendur í rannsókninni tóku þátt með því að smella á vefslóð og leysa verkefnið á eigin tölvu. Því höfum við ekki nákvæmar upplýsingar um tækjabúnað.
Tilraunin var forrituð í PsychoPy (Peirce, o.fl., 2019), forritunarkóðanum var umbreytt í JavaScript og tilraunin keyrð á vefþjónum Pavlovia.org.
*Peirce, J. W., Gray, J. R., Simpson, S., MacAskill, M. R., Höchenberger, R., Sogo, H., Kastman, E., Lindeløv, J. (2019). PsychoPy2: experiments in behavior made easy. Behavior Research Methods. 10.3758/s13428-018-01193-y
Tilraunasnið
Í tilrauninni var aðeins ein megin frumbreyta: flokkur ljósmyndar (sem má líka alveg kalla eitthvað annað skiljanlegt). Flokkarnir voru sjö: [nýtt, gamalt, tálbeita 1, tálbeita 2, tálbeita 3, tálbeita 4, tálbeita 5]. Þessir flokkar eiga aðeins við um ljósmyndirnar í próffasanum. Engin eiginleg frumbreyta var í námsfasa og við vinnum ekki með gögnin úr honum. Fylgibreytan er hlutfall réttra svara, sem við skoðum fyrir hvert stig frumbreytunnar.
Tilraunin studdist við innanhópasnið þar sem allir þátttakendur tóku þátt í öllum aðstæðum (stigum frumbreytu).
Framkvæmd
Hér er hrá lýsing á því hvernig tilraunin fór fram. Til að einfalda skýrsluna, látum við eins og aðeins hafi farið fram MST minnistilraun, en sleppum því að segja frá VIVAS og VVIQ hugsýnamælingum. Í raunverulegri rannsóknarskýrslu myndum við aldrei sleppa slíkum upplýsingum, en í þessu tilviki gæti útlistun á öllum ferlinum lengt skýrsluna um margar blaðsíður. Því sleppum við alveg þeim hluta.
Lýsingin sem fylgir er í formi stuttra punkta í tímaröð. Framkvæmd tilraunar í rannsóknaskýrslu er venjulega rituð frásögn í samfelldu máli og því eiga stúdentar aðeins að nota þessar upplýsingar til að skrifa upp úr, en ekki herma eftir þennan stíl/punktform.
- Gagnasöfnunin fór fram í kennslustofu. Stúdentar fengu aðgang að hlekk á veftilraun á Pavlovia.org
- Tilraunin opnaðist í tölvu þátttakenda og hófst á upplýsingaskjá (sjá nánar í Röð atburða í MST: https://rpubs.com/arniga/MSTproc) þar sem þátttakendur voru upplýstir um rannsakendur, réttindi sín sem þátttakendur og leyfi til að draga upplýst samþykki til baka.
- Næst birtust leiðbeiningar um námsfasa (learning/encoding phase) í MST
- Námsfasi MST verkefnis hófst. Hann var samtals 128 umferðir, þar sem ein ljósmynd var sýnd í hverri umferð. Í upphafi hverrar umferðar birtist áhorfskross (+) í 500 ms. Síðan birtist mynd í 2 sekúndur. Eftir það hvarf myndin af skjánum, en næsta umferð hófst ekki fyrr en þátttakandi hafði valið “inni” eða “úti” með því að ýta á I eða U takka.
- Eftir 128 umferðir í námsfasa birtust leiðbeiningar um próffasa (test phase) MST. Þar voru þátttakendur upplýstir um að þeir væru að fara í minnispróf, þar sem verkefnið væri að segja til um hvort mynd væri “gömul” (séð áður) eða “ný” (ekki séð áður). Þátttakendur voru varaðir við því að sumar myndir væru mjög líkar áður séðum myndum, en þær ætti samt að flokka sem nýjar.
- Eftir lestur leiðbeininga hófst próffasinn. Í honum voru 192 umferðir1, þar sem ein ljósmynd birtist í einu. Þriðjungur (64) myndanna voru “gamlar” myndir, sem þátttakendur höfðu þegar séð í námsfasa. Þriðjungur voru “nýjar” myndir, ólíkar þeim sem þátttakendur höfðu séð í námsfasa. Síðasti þriðjungur voru tálbeitumyndir (lures) sem voru nýjar, en líkar myndum úr námsfasa. Hver umferð í próffasa byrjaði á áhorfskrossi (+) sem sást í 500 ms. Því næst birtist ljósmynd og var á skjánum þar til þátttakandi svaraði “gömul” eða “ný” með því að ýta á B eða N takka á lyklaborði.
- Að 192 umferðum loknum birtist skjár þar sem þátttakendum var þakkað fyrir og þeim boðið að endurskoða upplýst samskipti. Þátttakendur ýttu á J takka til að samþykkja að gögn þeirra væru greind á ópersónugreinanlegu formi, en N takka til að draga samþykki til baka.
Gögn þeirra sem veittu samþykki fyrir úrvinnslu voru vistuð á vefþjónum Pavlovia.org, sótt af umsjónarkennara sem forvann gögnin og gerði tilbúin til úrvinnslu fyrir rannsóknarskýrslur stúdenta í námskeiðinu Tilraunasálfræði TIS0178.