Gölluð vísindi - UT verkefni 6 - TIS0178
Hópverkefni - Gerðu fimm villur
Í þessum verkefnatíma ætlum við að snúa hlutunum á haus. Í stað þess að reyna að hanna fullkomna rannsókn, er markmiðið að hanna gallaða rannsókn, en að reyna að vera lúmsk við það svo erfitt verði að koma auga á gallana!
Fyrirkomulag í Teams
Mælt er með að einn í hópnum taki að sér að vera ritari hópsins og deili skjánum sínum á Teams í breakout herberginu. Þannig geta allir fylgst með textanum verða til, og það er líka fljótlegt að sýna kennara stöðu verkefnisins þegar hann flakkar á milli herbergja.
Skref 1: Skrifið lýsingu á rannsókn (25-30 mínútur)
- Veljið rannsóknarspurningu: Hún má vera fáránleg eða hefðbundin. En þarf að vera eitthvað sem væri mögulegt að rannsaka.
- Skrifið uppkast að texta sem lýsir rannsókninni í 200 - 300 orðum.
- Laumið inn 5 villum: Veljið nákvæmlega fimm aðferðafræðilegar eða röklegar villur sem þið hafið kynnst í námskeiðinu (sjá dæmi á listan hér að neðan).
- Fáið aðstoð frá Sókratesi: Til að tryggja að textinn hljómi eins og eðlilegur akademískur texti og að villurnar séu ekki of augljósar (t.d. “við mældum greind með reglustiku”), skuluð þið kynna hugmyndina ykkar fyrir gervigreindar-aðstoðarkennaranum Sókratesi. Hann mun hjálpa ykkur að fela villurnar á snjallan hátt.
- Límið lýsinguna inn á glæru. Finnið glæru fyrir hópinn ykkar (Hópur #) og límið textann inn.
Skref 2: Ritrýni (10-15 mínútur)
Þegar allir hópar hafa sett inn sinn texta skiptum við um hlutverk. Færið ykkur yfir á glæru annars hóps (kennari segir til um hvaða hóp þið rýnið).
Lesið textann þeirra með gagnrýnum augum og reynið að grafa upp þær fimm villur sem þau földu. Skráið niður það sem þið finnið í dálkinn hægra megin á glærunni þeirra og reynið að nota viðeigandi hugtök til yfir villurnar í texta og stutta skýringu með, sem bendir hvar í textanum þið funduð villuna.
Dæmi um mögulegar villur og skekkjur
Hóparnir eiga að velja fimm mismunandi villur í textanum sínum. Hér fyrir neðan er innblástur, en ef þið munið eftir öðrum villum, er sjálfsagt að nota þær.
- Valskekkja/-bjögun (Selection Bias): Hópar eru ekki slembiraðaðir (t.d. eðlislægur munur á hópunum í upphafi).
- Raðhrif eða þreyta: Engin niðurjöfnun (counterbalancing) notuð í innanhópasniði.
- Óskýr orsakastefna / Þriðjubreyta: Ályktað um beina orsök út frá gögnum sem sýna bara fylgni eða tengsl.
- Umhverfisblendnibreytur: Hópar (eða aðstæður) eru prófaðir í mjög ólíku umhverfi eða á ólíkum tímum (t.d. morgun vs. seinnipartur).
- Ógn vegna brottfalls (Attrition): Litið er framhjá því að margir þátttakendur hættu eða duttu út úr annarri aðstæðunni.
- Tímatengdar breytur (History/Maturation): Borin er saman fyrri og seinni mæling yfir langan tíma þar sem þroski eða aðrir atburðir gætu skýrt breytinguna.
- Rjáfur- eða gólfhrif: Mælingin er annað hvort of auðveld (allir fá 100%) eða of erfið (enginn getur leyst hana).
- Staðfestingarskekkja (Confirmation Bias): Rannsakendur leita aðeins að gögnum sem styðja tilgátuna og hunsa andstæðar vísbendingar.
- Alhæfing í fljótfærni (Hasty Generalization): Alhæft um stórt þýði út frá mjög smáu eða ólýsandi úrtaki.
- Fölsk tvíhyggja (False Dilemma): Aðeins tveir valkostir eru kynntir eða prófaðir, þótt fleiri séu augljóslega í boði.
- Fölsk hliðstæða / Smættunarvilla: Mælingin eða ályktunin byggir á galnum samanburði, eða eiginleikar hluta eru yfirfærðir á heildina.
- Ógild skilyrt rökfærsla: Dregin er röng ályktun (Staðfesting bakliðar eða neitun forliðar).