Tæknilegar upplýsingar og sjónræn röð atburða í MST (mnemoic similarity task)

Author

Árni Gunnar Ásgeirsson

Helstu upplýsingar um tilraun, fyrir Aðferð í rannsóknarskýrslu

!!! Þessar upplýsingar á ekki að afrita og setja inn í skýrslu, heldur á að skrifa skýrsluna og nota þessar upplýsingar til að fylla inn í texta á viðeigandi stað. Skoðið dæmi um skýrslu í 16. kafla bókar, eða bara í fagtímaritum í sálfræði, til að skilja hvernig eðlilegt er að skrifa aðferðakafla í skýrslum. !!!

Þátttakendur

  • Þátttakendur voru stúdentar í námskeiðunum Tilraunasálfræði og Skynjunarsálfræði
  • Gagnasöfnun fór fram í staðlotu stúdenta, dagana 12. og 14. október, 2026
  • Stúdentar hafa ekki aðgang að kyni og aldri þátttakanda við úrvinnslu gagnanna.
  • 99 stúdentar tóku þátt í rannsókninni
    • 14 veittu ekki samþykki fyrir notkun gagna sinna og var þá eytt úr gagnasafninu
    • Einn þátttakandi var útilokaður vegna litblindu
    • Hugsanlegt er að fjarlægja þurfi fleiri þátttakendur úr gagnasafninu. Slík ákvörðun er tekin við skoðun gagna

Áreiti

Í MST tilrauninni (Mnemonic Similarity Task; Stark et al., 2019) voru notaðar ljósmyndir af github síðu Craig E.L. Stark (https://github.com/celstark/MST) þar sem öll ljósmyndasöfn úr mismunandi MST prófum eru aðgengileg. Í tilrauninni var notað safnið Set C. Í því eru myndir af hversdagslegum hlutum, svo sem verkfærum, skrautmunum, leikföngum, raftækjum og fleiru.

Í myndasafninu eru 128 myndir sem ætlaðar eru í námsfasa (learning phase) tilraunar.

Í próffasanum (test phase) eru notaðar 192 ljósmyndir.

  • 64 sem eru myndir sem hafa þegar birst í námsfasanum

  • 64 eru nýjar myndir, ótengdar þeim sem birtust í námsfasanum

  • 64 eru tálbeitumyndir, sem líkjast myndum úr námsfasanum, en eru frábrugðnar að einhverju leyti. Þessar myndir eru flokkaðar í fimm flokka, eftir því hversu erfitt er að aðgreina þær frá myndunum úr námsfasanum, þar sem flokkur 1 táknar mest líkindi, en flokkur 5 minnst líkindi.

Raunstærð ljósmyndinna er ekki þekkt, þar sem þátttakendur leystu verkefnið á eigin tölvur sem hafa mismunandi skjái. Myndastærðin var fest þannig að ferningslaga myndskrá var alltaf 35% af hæð tölvuskjás.

Ljósmyndirnar birtast alltaf á hvítum bakgrunni [rgb = 255, 255, 255]

Allar leiðbeiningar birtust í svörtum bókstöfum [rgb = 0, 0, 0] í leturgerðinni Arial.

Tækjabúnaður

Þátttakendur í rannsókninni tóku þátt með því að smella á vefslóð og leysa verkefnið á eigin tölvu. Því höfum við ekki nákvæmar upplýsingar um tækjabúnað.

Tilraunin var forrituð í PsychoPy (Peirce, o.fl., 2019), forritunarkóðanum var umbreytt í JavaScript og tilraunin keyrð á vefþjónum Pavlovia.org.

*Peirce, J. W., Gray, J. R., Simpson, S., MacAskill, M. R., Höchenberger, R., Sogo, H., Kastman, E., Lindeløv, J. (2019). PsychoPy2: experiments in behavior made easy. Behavior Research Methods. 10.3758/s13428-018-01193-y

Tilraunasnið

Í tilrauninni var aðeins ein megin frumbreyta: flokkur ljósmyndar (sem má líka alveg kalla eitthvað annað skiljanlegt). Flokkarnir voru sjö: [nýtt, gamalt, tálbeita 1, tálbeita 2, tálbeita 3, tálbeita 4, tálbeita 5]. Þessir flokkar eiga aðeins við um ljósmyndirnar í próffasanum. Engin eiginleg frumbreyta var í námsfasa og við vinnum ekki með gögnin úr honum. Fylgibreytan er hlutfall réttra svara, sem við skoðum fyrir hvert stig frumbreytunnar.

Tilraunin studdist við innanhópasnið þar sem allir þátttakendur tóku þátt í öllum aðstæðum (stigum frumbreytu).

Framkvæmd

Hér er hrá lýsing á því hvernig tilraunin fór fram. Til að einfalda skýrsluna, látum við eins og aðeins hafi farið fram MST minnistilraun, en sleppum því að segja frá VIVAS og VVIQ hugsýnamælingum. Í raunverulegri rannsóknarskýrslu myndum við aldrei sleppa slíkum upplýsingum, en í þessu tilviki gæti útlistun á öllum ferlinum lengt skýrsluna um margar blaðsíður. Því sleppum við alveg þeim hluta.

Lýsingin sem fylgir er í formi stuttra punkta í tímaröð. Framkvæmd tilraunar í rannsóknaskýrslu er venjulega rituð frásögn í samfelldu máli og því eiga stúdentar aðeins að nota þessar upplýsingar til að skrifa upp úr, en ekki herma eftir þennan stíl/punktform.

  • Gagnasöfnunin fór fram í kennslustofu. Stúdentar fengu aðgang að hlekk á veftilraun á Pavlovia.org
  • Tilraunin opnaðist í tölvu þátttakenda og hófst á upplýsingaskjá (sjá nánar í Röð atburða í MST: https://rpubs.com/arniga/MSTproc) þar sem þátttakendur voru upplýstir um rannsakendur, réttindi sín sem þátttakendur og leyfi til að draga upplýst samþykki til baka.
  • Næst birtust leiðbeiningar um námsfasa (learning/encoding phase) í MST
  • Námsfasi MST verkefnis hófst. Hann var samtals 128 umferðir, þar sem ein ljósmynd var sýnd í hverri umferð. Í upphafi hverrar umferðar birtist áhorfskross (+) í 500 ms. Síðan birtist mynd í 2 sekúndur. Eftir það hvarf myndin af skjánum, en næsta umferð hófst ekki fyrr en þátttakandi hafði valið “inni” eða “úti” með því að ýta á I eða U takka.
  • Eftir 128 umferðir í námsfasa birtust leiðbeiningar um próffasa (test phase) MST. Þar voru þátttakendur upplýstir um að þeir væru að fara í minnispróf, þar sem verkefnið væri að segja til um hvort mynd væri “gömul” (séð áður) eða “ný” (ekki séð áður). Þátttakendur voru varaðir við því að sumar myndir væru mjög líkar áður séðum myndum, en þær ætti samt að flokka sem nýjar.
  • Eftir lestur leiðbeininga hófst próffasinn. Í honum voru 192 umferðir1, þar sem ein ljósmynd birtist í einu. Þriðjungur (64) myndanna voru “gamlar” myndir, sem þátttakendur höfðu þegar séð í námsfasa. Þriðjungur voru “nýjar” myndir, ólíkar þeim sem þátttakendur höfðu séð í námsfasa. Síðasti þriðjungur voru tálbeitumyndir (lures) sem voru nýjar, en líkar myndum úr námsfasa. Hver umferð í próffasa byrjaði á áhorfskrossi (+) sem sást í 500 ms. Því næst birtist ljósmynd og var á skjánum þar til þátttakandi svaraði “gömul” eða “ný” með því að ýta á B eða N takka á lyklaborði.
  • Að 192 umferðum loknum birtist skjár þar sem þátttakendum var þakkað fyrir og þeim boðið að endurskoða upplýst samskipti. Þátttakendur ýttu á J takka til að samþykkja að gögn þeirra væru greind á ópersónugreinanlegu formi, en N takka til að draga samþykki til baka.

Gögn þeirra sem veittu samþykki fyrir úrvinnslu voru vistuð á vefþjónum Pavlovia.org, sótt af umsjónarkennara sem forvann gögnin og gerði tilbúin til úrvinnslu fyrir rannsóknarskýrslur stúdenta í námskeiðinu Tilraunasálfræði TIS0178.

Hér verður röð atburða lýst myndrænt, svo þið getið séð hvernig tilraunin leit út, án þess að þurfa að endurtaka hana.

Í kaflanum Aðferð í APA rannsóknarskýrslu þarf að gera grein fyrir öllum smáatriðum rannsóknar. Í undirkaflanum Framkvæmd er atburðarás gjarnan lýst í smáatriðum. Til að geta gert grein fyrir henni, þarf öll atburðarás INNAN tilraunarinnar að vera á hreinu. Hér fylgir myndrænt yfirlit á atburðum MST verkefnisins, eins og það birtist stúdentum í lotunni.

1. Upplýsingar vegna þátttöku stúdenta í rannsókn, sem hluti af námi

Fyrsti skjárinn sem birtist þátttakendum var til að upplýsa um réttindi þeirra til að draga samþykki tilbaka, áður en tilraunaþátttöku lyki. Þetta var mikilvægt svo að allir fengju tækifæri til að prófa tilraunina, án þess að þurfa að skuldbinda sig til að veita rannsakanda (kennara) leyfi til að nýta gögn úr rannsókninni. Þessar leiðbeiningar voru svona:

Leiðbeiningarnar birtust eins lengi og þátttakandi þurfti, þ.e. þær hurfu þegar ýtt var á bilstöng (spacebar).

2. Leiðbeiningar um MST verkefnið

Næsti skjár var líka upplýsingaskjár, nú með leiðbeiningum um MST námsfasa (learning phase) verkefnis. Þær voru svona:

Leiðbeiningarnar birtust eins lengi og þátttakandi þurfti, þ.e. þær hurfu þegar ýtt var á bilstöng (spacebar).

3. MST námsfasi (learning phase)

Samtals voru 128 umferðir í námsfasanum.

Hver umferð hófst á hvítum skjá þar sem áhorfskross (+) birtist á miðjum skjá í 500 millisekúndur (500 ms/0,5 sek).

Áhorfskrossinn hvarf og ein af 128 myndum birtist á miðjum skjánum. Þátttakendur völdu hvort myndir sýndi eitthvað sem ætti betur við inni (I) eða úti (U).

Myndin hvarf af skjánum um leið og ýtt var á U eða I takka.

4. Leiðbeiningar um próffasa MST (test phase)

Næst birtust leiðbeiningur um próffasann, þ.e. minnisprófið í MST. Þær voru svona:

Leiðbeiningarnar birtust eins lengi og þátttakandi þurfti, þ.e. þær hurfu þegar ýtt var á bilstöng (spacebar).

5. Próffasi MST verkefnis (test phase)

Í próffasa voru samtals 192 umferðir. Þær byrjuðu allar á því að áhorfskross birtist í 500 ms.

Áhorfskrossinn hvarf og ein af 192 myndum birtist á miðjum skjánum.

Í 64 umferðum birtist mynd sem þátttakandi hafði séð í námsfasa rannsóknar

Í 64 umferðum birtist mynd sem líktist mynd sem þátttakandi hafði séð í námsfasa rannsóknar. Þessar myndir kallast tálbeitur (e. lures) og var skipt í 5 flokka, eftir því hversu líkar þær væru myndum úr námsfasa. Tálbeita í flokki 1 var MJÖG líka mynd úr námsfasanum. Tálbeita í flokki 5 var frekar ólík mynd úr námsfasa, en þó úr sama flokki.

Þátttakendur tóku afstöðu til þess hvort myndin sýndi eitthvað “gamalt”, þ.e. sem þeir höfðu séð áður, eða “nýtt”, þ.e. mynd sem þeir höfðu ekki séð áður.

Note

Ath. að appelsínugulur texti á myndinni var ekki sýnilegur þátttakendum, heldur er hann aðeins tilkominn vegna þess að myndirnar voru sóttar í forprófunarham PsychoPy forritsins (pilot test). Þá birtist appelsínugulur viðvörunartexti með. Þetta á ekki að fjalla um í skýrslunni, enda var þetta ekki birtingarmyndin þegar gagnasöfnunin átti sér stað. !!!

6. Þakkað fyrir þátttöku og gefið tækifæri til að afturkalla samþykki fyrir notkun gagna

Að lokum var þátttakendum þakkað fyrir að taka þátt og þeir upplýstir um hvernig þeir gætu afturkallað samþykki fyrir notkun gagna (N-takki) eða veitt samþykki (J-takki).

Note

Ath. Sama gildir um appelsínugulan texta og ramma hér. Þetta var ekki svona í tilraun sem birtist þátttakendum