Röð atburða í MST (mnemoic similarity task)

Author

Árni Gunnar Ásgeirsson

Hér verður röð atburða lýst myndrænt, svo þið getið séð hvernig tilraunin leit út, án þess að þurfa að endurtaka hana.

Í kaflanum Aðferð í APA rannsóknarskýrslu þarf að gera grein fyrir öllum smáatriðum rannsóknar. Í undirkaflanum Framkvæmd er atburðarás gjarnan lýst í smáatriðum. Til að geta gert grein fyrir henni, þarf öll atburðarás INNAN tilraunarinnar að vera á hreinu. Hér fylgir myndrænt yfirlit á atburðum MST verkefnisins, eins og það birtist stúdentum í lotunni.

1. Upplýsingar vegna þátttöku stúdenta í rannsókn, sem hluti af námi

Fyrsti skjárinn sem birtist þátttakendum var til að upplýsa um réttindi þeirra til að draga samþykki tilbaka, áður en tilraunaþátttöku lyki. Þetta var mikilvægt svo að allir fengju tækifæri til að prófa tilraunina, án þess að þurfa að skuldbinda sig til að veita rannsakanda (kennara) leyfi til að nýta gögn úr rannsókninni. Þessar leiðbeiningar voru svona:

Leiðbeiningarnar birtust eins lengi og þátttakandi þurfti, þ.e. þær hurfu þegar ýtt var á bilstöng (spacebar).

2. Leiðbeiningar um MST verkefnið

Næsti skjár var líka upplýsingaskjár, nú með leiðbeiningum um MST námsfasa (learning phase) verkefnis. Þær voru svona:

Leiðbeiningarnar birtust eins lengi og þátttakandi þurfti, þ.e. þær hurfu þegar ýtt var á bilstöng (spacebar).

3. MST námsfasi (learning phase)

Samtals voru 128 umferðir í námsfasanum.

Hver umferð hófst á hvítum skjá þar sem áhorfskross (+) birtist á miðjum skjá í 500 millisekúndur (500 ms/0,5 sek).

Áhorfskrossinn hvarf og ein af 128 myndum birtist á miðjum skjánum. Þátttakendur völdu hvort myndir sýndi eitthvað sem ætti betur við inni (I) eða úti (U).

Myndin hvarf af skjánum um leið og ýtt var á U eða I takka.

4. Leiðbeiningar um próffasa MST (test phase)

Næst birtust leiðbeiningur um próffasann, þ.e. minnisprófið í MST. Þær voru svona:

Leiðbeiningarnar birtust eins lengi og þátttakandi þurfti, þ.e. þær hurfu þegar ýtt var á bilstöng (spacebar).

5. Próffasi MST verkefnis (test phase)

Í próffasa voru samtals 192 umferðir. Þær byrjuðu allar á því að áhorfskross birtist í 500 ms.

Áhorfskrossinn hvarf og ein af 192 myndum birtist á miðjum skjánum.

Í 64 umferðum birtist mynd sem þátttakandi hafði séð í námsfasa rannsóknar

Í 64 umferðum birtist mynd sem líktist mynd sem þátttakandi hafði séð í námsfasa rannsóknar. Þessar myndir kallast tálbeitur (e. lures) og var skipt í 5 flokka, eftir því hversu líkar þær væru myndum úr námsfasa. Tálbeita í flokki 1 var MJÖG líka mynd úr námsfasanum. Tálbeita í flokki 5 var frekar ólík mynd úr námsfasa, en þó úr sama flokki.

Þátttakendur tóku afstöðu til þess hvort myndin sýndi eitthvað “gamalt”, þ.e. sem þeir höfðu séð áður, eða “nýtt”, þ.e. mynd sem þeir höfðu ekki séð áður.

Note

!!! Ath. að appelsínugulur texti á myndinni var ekki sýnilegur þátttakendum, heldur er hann aðeins tilkominn vegna þess að myndirnar voru sóttar í forprófunarham PsychoPy forritsins (pilot test). Þá birtist appelsínugulur viðvörunartexti með. Þetta á ekki að fjalla um í skýrslunni, enda var þetta ekki birtingarmyndin þegar gagnasöfnunin átti sér stað. !!!

6. Þakkað fyrir þátttöku og gefið tækifæri til að afturkalla samþykki fyrir notkun gagna

, Að lokum var þátttakendum þakkað fyrir að taka þátt og þeir upplýstir um hvernig þeir gætu afturkallað samþykki fyrir notkun gagna (N-takki) eða veitt samþykki (J-takki).

Note

!!! Ath. Sama gildir um appelsínugulan texta og ramma hér. Þetta var ekki svona í tilraun sem birtist þátttakendum !!!