Verkefni 4 - Aðgerðabinding hugsmíða
Í fjórða verkefnatíma ætlum við að vinna með aðgerðabindingu (operational definitions), og reyna að finna leiðir til að skilgreina hugsmíðar (constructs) út frá þeim mælingum sem við veljum að nota.
Til þess notum við hugtök sem hafa tiltölulega flókið inntak. Dæmi um þetta eru ást, heppni og stolt. Flestir telja sig vita hvað þessi hugtök þýða, en gætu átt erfitt með að skilgreina þau, að minnsta kosti í fljótu bragði.
1. Hópurinn velur sér eitt hugtak af lista
Hér eru nokkrar hugsmíðar. Veljið eina til að vinna með í verkefninu.
Góðviðrispressa (streita sem skapast þegar nýta þarf “gott” íslenskt veður)
Hungursbræði (að vera hangry)
Athyglissýki
Bifreiði (road rage)
Símaaðskilnaðarkvíði (nomophobia)
2. Farið á Microsoft Forms og svarið verkefninu þar
Tengill verður settur í spjallið hjá hverjum hópi (breakout rooms)
Spurningar í Forms:
Spurningarnar eru aðeins skrifaðar hér svo hægt sé að sjá allt verkefnið, án þess að opna vefsíðu í Microsoft Forms. Þetta er gagnlegt ef stúdentar skoða verkefnið eftir umræðutímann (svo sem til upprifjunar). Ef þú ert að lesa þetta í verkefnatímanum þarf einn hópmeðlimur að opna skilaformið og skrifa svörin inn þar. Verkefninu er aðeins hægt að skila á meðan umræðutíminn á sér stað og aðeins í gegnum Microsoft Forms.
i) Hvaða hugsmíð valdi hópurinn?
[valið úr lista]
ii) Skrifið stutta lýsingu (2-4 málsgreinar) á inntaki hugsmíðarinnar, þ.e. eins konar óformlega skilgreiningu á hugsmíðinni.
Dæmi: Frestunarhneigð (procrastination) snýst um að slá vísvitandi á frest mikilvægum verkefnum sem þarf að klára, þrátt fyrir að einstaklingurinn viti að frestunin muni líklega hafa neikvæðar afleiðingar í för með sér. Þetta er ekki endilega leti eða skipulagsleysi, heldur frekar tilfinningalegt flóttaviðbragð þar sem fólk forðast kvíðavaldandi eða leiðinleg verkefni með því að leita í aðra hegðun sem veitir skjóta vellíðan og truflun (t.d. samfélagsmiðla). Þessi hegðun skapar svo ákveðinn vítahring þar sem skammvinnur léttir breytist fljótt í aukna streitu og samviskubit þegar verkið er loksins unnið í flýti á síðustu stundu.
iii) Varpið fram einni tilgátu þar sem hugsmíðin sem þið völduð er annað hvort frumbreyta (independent variable) eða fylgibreyta (dependent variable) sem kemur fyrir í tilgátunni. Munum að frumbreyta er breyta sem er undir stjórn rannsakanda og hefur áhrif á fylgibreytu (a.m.k. samkvæmt tilgátu). Fylgibreytan er þá sú breyta sem verður fyrir áhrifum af frumbreytu eða -breytum.
Dæmi: 1) Þeir sem hafa mikla frestunarhneigð fá lægri einkunnir í háskóla, samanborið við stúdenta sem hafa litla frestunarhreigð, þegar tekið er tillit til greindartölu (IQ,e. intelligence quotient). 2) Aukinn ófyrirsjáanleiki í starfi leiðir til aukinnar frestunarhneigðar
Ath. að þetta eru bara tilgátur (staðhæfingar sem á eftir að prófa). Til að styðja við, eða hafna, tilgátunum þarf að gera prófanir og þá er mikilvægt að vera með skýra aðgerðarbindingu á hugsmíðinni frestunarhneigð.
iv) Hvernig mynduð þið mæla þessa hugsmíð með því að spyrja þátttakandann sjálfan (með sjálfsmatskvarða/spurningalista)? Búið til 1-3 spurningar sem gætu verið hluti af spurningalista sem ætlað er að mæla hugsmíðina. Takið fram hvernig svarmöguleikar væru notaðir (t.d. sammála/ósammála, tíðni, einkunn 1-10)?
Dæmi:
„Ég byrja á stórum verkefnum kvöldið áður en þeim á að skila.“
„Hversu oft slærðu mikilvægum ákvörðunum á frest þótt þú vitir að það muni hafa slæmar afleiðingar?“
„Ég á auðvelt með að hefjast handa við verkefni sem mér finnast leiðinleg.“ (öfugt kóðuð spurning, þ.e. hærri stig þýðir MINNI frestunarhneigð)
Svarmöguleikar: 1 = Aldrei, 2 = Sjaldan, 3 = Stundum, 4 = Oft, 5 = Alltaf.
Í þessu tilviki væri hægt að nota sömu svarmöguleikana við allar spurningar, en það er ekki nauðsynlegt við smíði spurningalista.
v) Hvers konar mælikvarði er kvarðinn sem þið stunguð upp á í spurningu iv? (nafnkvarði, raðkvarði, jafnbilakvarði eða hlutfallskvarði)
[valið af lista]
Dæmi: Í dæminu á undan er spurningum svarað á raðkvarða (ordinal scale)
vi) Hvernig mynduð þið mæla þessa hugsmíð með hegðunarmælingu (behavioral measure) EÐA lífeðlisfræðilegri mælingu? (veljið aðeins aðra tegund mælinga)
Dæmi:
Hegðunarmæling: Frestunarhneigð er metin í þrjá flokka eftir því hvenær verkefnislýsing er opnuð á Canvas. Verkefnislýsing er sett inn viku fyrir skilafrest. Þeir sem opna hana á fyrstu 4 dögunum eru metnir “án frestunaráráttu”; þeir sem opna á 5-6 degi með “miðlungs frestunaráráttu” og þeir sem opna hana á skiladegi eru metnir með “alvarlega frestunaráráttu”.
Lífeðlisleg mæling: Streituhormónið kortísól er mælt í munnvatni þegar hálftími er í að skilahólf loki á Canvas. Frestunarhneigð fylgir oft mikil streita nálægt skilafresti og kortísól í munnvatni er til marks um streitu
Athugið að hegðunar- og lífeðlislegar mælingar eru mjög fjölbreyttar. Hegðunarmæling gæti verið þegar rannsakandi eða matsmaður skráir tiltekna hegðun hjá manneskju eða dýri, mæling á svartímum eða fjölda réttra svara í tilraun sem er framkvæmd með tölvu, mæling á þvi hversu margar bækur nemandi í grunnskóla les, eða svo margt annað. Þegar talað er um hegðunarmælingar erum við yfirleitt að tala um mælingu á hegðun sem er ekki yrt, þ.e. við erum ekki bara að spyrja hvað einhverjum finnst eða hvernig viðkomandi metur eitthvað. En annars getur flest sem manneskja (eða dýr) gerir talist til hegðunarmælingar. Lífeðlislegar mælingar eru líka mjög fjölbreyttar og geta snúist um púls, blóðþrýsting, vöðvasvörun, rafvirkni heila og margt fleira. Í þessu verkefni eruð þið hvött til að stinga ekki upp á mælingum sem er mikið flóknari en svo að þið skiljið þær nokkurn vegin sjálf.
vii) Þegar við aðgerðabindum þurfum við að velta fyrir okkur hugsmíðaréttmæti (construct validity) aðgerðarbindingar. Er sú aðferð sem við veljum til að aðgerðabinda hugsmíðina raunverulega að ná utan um það sem við viljum mæla? Og hvað með sundurgreiniréttmæti (divergent validity)? Reynið nú að vera mjög gagnrýnin á hegðunar-/lífeðlisfræðilegu mælinguna ykkar. Er þessi mæling alveg örugglega að mæla það sem þið viljið mæla? Gæti hún allt eins verið að mæla einhverja aðra hugsmíð, sem gæti leitt til svipaðrar hegðunar eða lífeðlislegra viðbragða?
Dæmi:
Hegðunarmæling á frestunarhneigð (að mæla hvenær nemandi skilar verkefninu á Canvas): Þessi mæling gæti haft lágt hugsmíðaréttmæti vegna þess að nemandi sem skilar á síðustu stundu gæti verið að mælast hár á allt annarri hugsmíð en frestunarhneigð. Hann gæti til dæmis verið með mikla „fullkomnunaráráttu“ (perfectionism) og hafa eytt vikunni í að endurskrifa nokkrum sinnum, frekar en að slá því á frest. Eða nemandinn gæti einfaldlega búið við mikinn tímaskort af því að hann vinnur 80% vinnu og á 6 mánaða þríbura. Hegðunarmælingin út frá skilatíma í Canvas á erfitt með að aðgreina frestunarhneigð frá þessum hugsmíðum, og kannski fleirum sem eru ekki nefndar hér.
Lífeðlisfræðilega mælingin á frestunarhneigð (að mæla kortisól í munnvatni): Kortisól er almennt streituhormón. Ef við mælum hátt kortisól hjá nemanda stuttu fyrir skil gætum við verið að mæla „prófkvíða“, almenna „streitu“ (t.d. ef eitthvað er að heima hjá viðkomandi) eða jafnvel „koffínneyslu“ (sem hækkar kortisól), frekar en streitu vegna frestunar. Þessi mæling skortir því mjög mikið sundurgreiniréttmæti, þar sem hún gerir ekki greinarmun á frestunarhneigð og öðrum álagstengdum hugsmíðum.
viii) Skrifið full nöfn allra í hópnum í reitinn, með kommu á milli
Dæmi: Jón Jónsson, Jóna Jensína Jónudóttir, Jónas Jón Jensínuson, …