Námskeiðsáætlun - Haust 2026

Tilraunasálfræði - TIS0178

Markmið námskeiðs í Tilraunasálfræði er að stúdentar kynnist aðferðafræði tilrauna og geti greint hana frá annarri vísindalegri aðferðafræði. Þá skulu stúdentar kynnast megindlegri vinnu með gögn og framsetningu og lestur gagna, auk þess að fá þjálfun í gagnrýnni hugsun. Takist að tileinka sér efni námskeiðsins ættu stúdentar að vera færir um að líta fræðilegt og hversdagslegt efni gagnrýnum augum og meta með skynsamlegum hætti. Þannig er námskeiðinu ætlað að undirbyggja það sem á eftir fylgir á háskólagöngunni, bæði í grunn- og framhaldsnámi.

Stúdentar skulu kynna sér námskeiðsáætlun ítarlega og skipuleggja sig eftir henni. Hér eru nokkrir punktar um dagskrá námskeiðs, en nákvæm dagskrá fylgir á eftir.

1 Dagskrá

Kennsluvika

Dagur

Efni

Form

Bók

Lesefni

1

31. ágúst

Kynning á námskeiði

Teams fundur

Námskeiðsáætlun

1

31. ágúst

Þekkingaröflun og vísindaleg aðferð

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kafli 1

1

4. september

💬✅

Umræðu- og fyrirspurnatími

Teams

2

7. september

Rannsóknahugmyndir og tilgátur

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kafli 2

2

9. september

☑️

Skil á smáverkefni 1

2

11. september

💬✅

Umræðu- og fyrirspurnatími

Teams

3

14. september

Breytur: skilgreiningar og mælingar

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kafli 3

3

14. september

Inngangur að gagnrýninni hugsun

Upptaka

HTTAWT

Kafli 1

3

16. september

☑️

Skil á smáverkefni 2

3

18. september

💬✅

Umræðu- og fyrirspurnatími

Teams

4

21. september

Vísindasiðferði og APA rannsóknarskýrslur

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kaflar 4 og 16

4

21. september

Hið mögulega ómögulega

Upptaka

HTTAWT

Kafli 2

4

23. september

☑️

Skil á smáverkefni 3

4

25. september

💬✅

Umræðu- og fyrirspurnatími

Teams

5

28. september

Úrtök og tölfræði

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kaflar 5 og 15 (381-397)

5

28. september

Röksemdir

Upptaka

HTTAWT

Kafli 3

5

30. september

☑️

Skil á smáverkefni 4

5

2. október

💬✅

Umræðu- og fyrirspurnatími

Teams

6

5. október

Rannsóknaaðferðir og réttmæti

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kafli 6

6

5. október

Tilraunaaðferð

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kafli 7

6

7. október

☑️

Skil á smáverkefni 5

6

9. október

📝

Fyrra misserispróf

Á prófstað

Gravetter (kaflar 1-6 og 15)

HTTAWT (kaflar 1-3)

7

12. október

LOTA

Staðarkennsla

7

16. október

💬

Auka umræðu og fyrirspurnatími (ekki merkt við mætingu)

8

19. október

Millihópasnið og Innanhópasnið

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kaflar 8 og 9

8

19. október

Þekking, trúa og sönnunargögn

Upptaka

HTTAWT

Kafli 4

8

21. október

☑️

Skil á smáverkefni 6

8

23. október

💬✅

Umræðu- og fyrirspurnatími

Teams

9

26. október

Innanhópasnið og þáttasnið

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kaflar 9 og 11

9

28. október

☑️

Skil á smáverkefni 7

9

29. október

📬

Skiladagur rannsóknarskýrslu

Canvas

Gravetter o.fl.

Kafli 16

9

30. október

💬✅

Umræðu- og fyrirspurnatími

Teams

10

2. nóvember

Hálftilraunir o.fl.

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kafli 10

10

2. nóvember

Sannleikurinn í eigin reynslu

Upptaka

HTTAWT

Kafli 5

10

4. nóvember

☑️

Skil á smáverkefni 8

10

6. nóvember

📝

Seinna misserispróf

Á prófstað

Gravetter (kaflar 7-11)

HTTAWT (kaflar 4-6)

11

9. nóvember

💬

Auka umræðu og fyrirspurnatími (ekki merkt við mætingu)

11

9. nóvember

Fylgnisnið

Upptaka

Gravetter o.fl.

Kafli 12

11

9. nóvember

Vísindi og gervivísindi

Upptaka

HTTAWT

Kafli 6

11

11. nóvember

☑️

Skil á smáverkefni 9

11

13. nóvember

💬✅

Umræðu- og fyrirspurnatími

Teams

12

16. nóvember

Dæmisögur af hinu furðulega

Upptaka

HTTAWT

Kafli 7

12

16. nóvember

Afstæðishyggja, sannleikur og veruleiki

Upptaka

HTTAWT

Kafli 8

12

18. nóvember

☑️

Skil á smáverkefni 10

12

20. nóvember

💬

Fyrirspurnatími fyrir lokapróf

Teams

12

21. nóvember

📬

Seinni skiladagur skýrslu

Canvas

Kafli 16

  • ☑️ Táknar smáverkefni sem telst til einkunnar (allt að 5%)
  • ✅ Táknar umræðutíma sem telst til einkunnar (allt að 5%). ATh. að umræðutímar sem þarf að færa vegna missersprófa og síðasti umræðu- og fyrirspurnatími fyrir próf telja EKKI til einkunnar.

2 Kennarar

Umsjónarkennari: Árni Gunnar Ásgeirson, Dósent við sálfræðideild. Skrifstofa: utan skóla.

Fyrirspurnir um námskeið fara fram á spjallborði námskeiðs í Canvas (Umræður) eða í umræðutímum. Ekki verður brugðist við fyrirspurnum í tölvupósti. Ef erindi varðar persónulega hagi stúdenta, er hægt að hringja í síma 4608654 eða í einkaskilaboðum á Teams. Athugið þó að óháð aðstæðum gilda sömu frestir og tækifæri fyrir alla stúdenta. Háskólinn á Akureyri tekur ekki við læknisvottorðum vegna tímabundinna veikinda, svo sem í prófi eða á skiladegi. Endurtökuúrræði eru þau sömu, óháð ástæðu fjarveru eða vanskila.

Aðstoðarkennari:

Note

Soffía Karen Erlendsdóttir

3 Kennslufyrirkomulag

Fyrirlestrar úr aðalnámsefninu, kennslubókum Gravetter o.fl. og ´How to Think About Weird Things, verða á formi myndbanda á CANVAS (Panopto í valmynd námskeiðs). Þessi myndbönd ættu að koma inn í seinasta lagi á mánudögum, ef þau eru ekki þegar á Panopto.

Í einhverjum tilvikum gæti verið vikið frá venju og fyrirlestur hafður í beinni útsendingu á Teams, eða í kennslustofu á Akureyri. Þá mun stúdentum berast tilkynning um breytinguna, en slíkir fyrirlestrar verða að sjálfsögðu teknir upp og gerðir aðgengilegir stúdentum.

Umræðu- og fyrirspurnatímar verða á Teams á föstudagsmorgnum kl. 10:00. Tímarnir eru allt að 90 mín. Merkt er við mætingu í þessa tíma (sjá nánar í Námsmat)

Umsjónarkennari verður erlendis á nýnemadögum og því verður kynningarfyrirlestur námskeiðsins á Teams, mánudaginn 31. ágúst

Þessi tengill færir ykkur á leiðbeiningar um hvernig á að ganga í Teams hóp námskeiðsins: Teams Leiðbeiningar. Mælst er til þess að stúdentar sæki Teams forritið á tölvuna sína, frekar en að nota vafraútgáfu. Það dregur úr líkum á tæknilegum vandamálum. Leiðbeiningar um hvernig á að setja upp forritið má finna með því að fylgja tenglinum (Teams leiðbeiningar).

Staðlotan, 12. október, fer fram í kennslustofu í HA. Staðlotan verður EKKI tekin upp og er helguð verkefnavinnu sem myndi ekki skila sér á upptöku. Mæting í lotu verður aðeins skráð á þá sem mæta í eigin persónu og taka fullan þátt í lotunni. Rafræn mæting er ekki í boði.

4 Kennsluefni

  1. Gravetter, F.J., Forzano, L.B. og Rakow, T. (2021). Research Methods For The Behavioural Sciences (1. útg.). Cengage.

  2. Schick, T. og Vaughn, L. (2024). How to think about weird things: Critical thinking for a new age (9. útg). McGraw-Hill.

  3. Annað efni verður aðgengilegt á Canvas.

5 Námsmat

Í námskeiðinu eru stúdentar hvattir til virkrar og jafnrar þátttöku yfir misserið, bæði hvað varðar lestur námsefnis, sókn í fyrirlestra og þátttöku í umræðutímum. En aðstæður stúdenta í sveigjanlegu námi eru misjafnar og því er boðið upp á að uppfylla námsmat með mismunandi áherslum.

Námsmat með fullri þátttöku, skiptist svona:

  1. Lokapróf (lágmark 60%)

  2. Tvö misserispróf (hærri prófeinkunn gildir 20%)

  3. Rannsóknarskýrsla (5%)

  4. Skil á smáverkefnum (5%)

  5. Þátttaka í umræðutímum (5%)

  6. *Full þátttaka í lotu (5%)*

Til að standast námskeiðið þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Að standast lokapróf með að lágmarki 4,75 í prófeinkunn
  • Að hljóta heildareinkunn sem er að lágmarki 4,75 (vegin meðaleinkunn alls námsmats)

Námsmatsliðir 1 til 3 (feitletraðir) eru skylda og reiknast til lokaeinkunnar hjá öllum.

Námsmatsliðir 4 til 6 (skáletraðir) eru valkvæðir og reiknast til lokaeinkunnar EF einkunn fyrir þá er hærri en einkunn á lokaprófi. Ef einkunnir fyrir þessa liði er lægri en einkunn á lokaprófi, detta þeir út úr útreikningi lokaeinkunnar og lokaprófið fær aukið vægi sem nemur vægi á tilteknum lið.

Dæmi:

Sálfræðinemi mætir í öll próf í tilraunasálfræði og reynir að uppfylla öll verkefnaskil og þátttöku, með því að mæta í 6 umræðutíma, skila að lágmarki 8 smáverkefnum og mæta í lotu. Þegar líður á misserið reynist honum erfitt að mæta í umræðutímana og nær á endanum ekki að mæta í nema 3 umræðutímum og fær því aðeins 5 í einkunn (3/6 = 0,5 = 50%). Á lokaprófi nær hann ágætum árangri og endar með 8,0. Vegna þess að 8,0 er hærri en 5,0, dettur einkunn fyrir umræðutímana út og lokaprófið gildir 65%, en ekki 60%. Af því að nemandanum tókst að mæta í lotu og skila öllum smáverkefnum fær hann 10 fyrir þessa liði og því gilda þeir til lokaeinkunnar.

Annar nemi telur sig ekki hafa tíma til að sinna umræðutímum, smáverkefnum og mæta í lotu. Hann ákveður að sleppa því alveg að reyna við þessa liði námsmatsins. Hann fær því einkunnina 0 fyrir þessa þrjá liði, en þess í stað gildir lokapróf hans 75% (60% + 15%)

Í öllum tilvikum gilda lokapróf, misserispróf (hærri einkunn af tveimur) og rannsóknarskýrsla til lokaeinkunnar. Ef einhverjum þessara þátta er sleppt er gefin einkunnin 0 og hún reiknuð sem hluti af lokaeinkunn.

Stúdentar geta sjálfir reiknað mögulegar lokaeinkunnir út frá mismunandi forsendum, með því að skoða Einkunnareiknivél á Canvas. Þar er hægt að slá inn mismunandi tölur fyrir hvern lið námsmats og sjá hvernig lokaeinkunn breytist.

5.1 Lokapróf

Lokaprófið verður krossapróf úr öllu efni námskeiðsins og gildir að lágmarki 60% af lokaeinkunn. Vægi lokaprófs getur mest orðið 75% ef einkunnir fyrir þátttöku í umræðutímum, þátttöku í lotu og skil á smáverkefnum eru öll lægri en einkunn lokaprófs. Prófið er prófdæmt fyrirfram og því verður ekki hægt að óska eftir prófdæmingu að prófi loknu (sjá Grein 1, lið 3, í reglum um samkeppnispróf í sálfræði)

Nemendur eru hvattir til að kynna sér Reglur um um val á nemendum til náms í sálfræði

5.2 Misserispróf

Próf á misserinu eru tvö:

  • Fyrra próf er 9. október. Efni til prófs:

    • Gravetter et al., kaflar 1 til 6 og bls. 381-397 í kafla 15.

    • HTTAWT, kaflar 1-3.

  • Seinna próf er 6. nóvember. Efni til prófs:

    • Gravetter et al., kaflar 7-11

    • HTTAWT, kaflar 4-6.

Prófin eru stutt krossapróf (20-25 spurningar). Markmið þessara prófa er

  • að gefa stúdentum í samkeppnisprófum skýra mynd af því hvernig lokapróf verður uppbyggt
  • að gefa stúdentum vísbendingu um hvar þeir standa
  • að hvetja til jafnari lesturs og vinnu með námsefnið, sem skilar betri og langvarandi þekkingu.

Misserisprófin eru saman ígildi eins prófs sem gildir 20%. Því verða engin sjúkra- og endurtökupróf vegna misserisprófanna. Einkunn hærra prófsins gildir og því fá allir tvö tækifæri til að standa sig vel á þessum 20% námsmatslið.

5.3 Rannsóknarskýrsla

Stúdentar skulu vinna eina rannsóknarskýrslu og skila fyrir misserislok. Rannsóknarskýrslan verður yfirfarin af aðstoðarkennara sem fylgir matsramma umsjónarkennara. Skýrslur sem teljast ekki fullnægjandi (undir 70% mögulegra stiga) má bæta og skila aftur. Allir hópar/nemendur fá umsögn frá aðstoðarkennara sem nota má til að bæta skýrslu, ef þörf er á, eða bara til að læra hvað hefði mátt fara betur í skýrslu sem þó er fullnægjandi. Aðeins er gefið staðið (5%) eða fallið (0%) fyrir skýrsluna.

Stúdentar mega vinna einir, eða tveir saman, að ritun skýrslu. Engar undanþágur eru veittar. Grunnurinn að ritun rannsóknarskýrslu er efni 16. kafla kennslubókar. Þar er fjallað um APA staðlað form við uppsetningu, ritun og heimildaskráningu. Þetta efni er til prófs, eins og annað á leslista námskeiðsins. Þá fá stúdentar að sjá einskonar sniðmát að stuttri skýrslu og hafa matsramma skýrslunnar til hliðsjónar við vinnuna.

Skiladagur rannsóknarskýrslu er 29. október

5.4 Smáverkefni

Tíu sinnum á misserinu verður lagt fyrir lítið heimaverkefni úr efni námskeiðs. Smáverkefnum er svarað á netinu og gefin er einkunnin staðið eða fallið fyrir hvert verkefni. Ef kennari metur það sem svo að nemandi hafi raunverulega reynt að svara verkefninu, er gefið staðið fyrir. Þessi verkefni á að vera hægt að leysa á tiltölulega stuttum tíma.

Smáverkefni opna á mánudögum kl. 13:00 og þarf að skila fyrir miðnætti á miðvikudögum, í vikunni á eftir. Mælt er með að venja sig á að leysa smáverkefnin strax að loknum lestri kennslubók og áhorfs fyrirlesturs, þegar námsefnið er í fersku minni.

Markmið smáverkefna er að hvetja stúdenta til að vinna með efni námskeiðs og koma með eigin hugmyndir út frá efninu. Slík meðferð á fræðilegu efni eykur líkurnar á að stúdentar tileinki sér raunverulega fræðin, skilji hugtök og aðferðir og geti frekar gert þeim skil í framtíðinni, svo sem á prófi.

Til að fá fulla einkunn fyrir smáverkefni þarf að skila að lágmarki 8 af 10 verkefnum.

Vægi einkunnar fyrir smáverkefni er 5%, ef einkunnin er hærri en einkunn á lokaprófi. Ef einkunn fyrir smáverkefni er lægri en einkunn á lokaprófi verður vægi hennar 0% og vægi einkunnar á lokaprófi hækkar um 5 prósentustig.

5.5 Þátttaka í umræðutímum

Á föstudögum verða umræðu- og fyrirspurnartímar þar sem stúdentum gefst færi á að ræða námsefnið við kennara og samnemendur. Þá mun kennari stundum kynna einhver verkefni sem ætlast er til að stúdentar leysi í umræðutímum og ræði í hópnum. Þrír umræðu- og fyrirspurnatímar teljast ekki til einkunnar. Einn á föstudegi í lotuviku, einn á mánudegi eftir seinna misserispróf og sá síðasti er fyrirspurnatími fyrir próf. Þessir tímar eru ætlaðir undir fyrirspurnir út í námsefni, en ekki nein skipulögð verkefni. Því fást engin mætingastig fyrir þessa tíma.

Mæting verður skráð sjálfkrafa með Teams mætingalistum og því er mikilvægt að stúdentar mæti í umræðutíma innskráðir með @unak.is netfangi. Ef stúdentar eru ekki innskráðir með viðeigandi netfangi skráist ekki mæting. Aðeins verða gefin mætingastig til þeirra sem eru í umræðutíma nógu lengi til að taka raunverulega þátt. Kennari áskilur sér að afskrá mætingu, ef ekki eru merki um raunverulega þátttöku.

Til að fá fulla einkunn fyrir mætingu í umræðutíma þarf að hafa skráða þátttöku í að minnsta kosti 6 af 8 tímum.

Vægi einkunnar fyrir mætingu í umræðutíma er 5%, ef einkunnin er hærri en einkunn á lokaprófi. Ef einkunn fyrir mætingu í umræðutíma er lægri en einkunn á lokaprófi verður vægi hennar 0% og vægi einkunnar á lokaprófi hækkar um 5 prósentustig.

5.6 Þátttaka í lotu

Þeir sem taka fullan þátt í lotu námskeiðs í október fá 5% af lokaeinkunn. Þeir sem ekki taka þátt fá einkunnina 0 fyrir lotuna, en vægi lokaeinkunnar hækkar um 5 prósentustig.

5.7 Endurtaka námsþátta

Rannsóknarskýrslu skal skila í seinasta lagi 29. október. Skilafrestur vegna skýrslna sem þarf að endurtaka, eða var ekki skilað fyrir fyrsta skilafrest, verður 21. nóvember. Athugið að þeir sem ekki skila skýrslu 29. október, fá ekki endurgjöf á verkefnið og aðeins eina tilraun til að ná lágmarkseinkunn.

Lokapróf verður kynnt í próftöflu haustmisseris 2026. Sjúkrapróf verður tilkynnt fljótlega að prófum loknum og verður aðeins fyrir þá sem misstu af lokaprófinu í hefðbundinni prófatíð. Endurtökupróf úr námskeiðinu verður haldið í janúar. Það próf er fyrir þá sem hljóta falleinkunn í námskeiðinu, en vilja reyna aftur til að fá einingar skráðar, svo sem vegna lána úr Menntasjóði. Endurtökupróf gilda ekki til þátttöku í samkeppnisprófum.

6 Um vinnuálag í háskólanámi

Viðmið Bologna yfirlýsingarinnar og menntamálaráðuneytis eru að baki hverri ECTS einingu búi 25-30 vinnustundir. Í námskeiði við HA er því hægt að ætlast til að stúdentar verji 200 - 240 vinnustundum í 8 eininga námskeið. Samtals er því búist við að stúdentar verji 50 - 60 klukkustundum á viku í fullt háskólanám, miðað við 15 vikna misseri. Það eru allt að 16 klst að meðaltali á viku fyrir námskeið á stærð við TIS (8 ECTS). Stúdentar eru hvattir til að skipuleggja sig vel og vinna jafnt og þétt yfir misserið, til að fá sem mest út úr náminu og koma í veg fyrir þunga álagspunkta í kringum próf og verkefnaskil.

Hér fylgir áætlun um tímann sem gæti tekið metnaðarfullan háskólanema að fara yfir efni námskeiðs í tilraunasálfræði:

Table 1: Áætlun um vinnuálag stúdenta í TIS0178

Lestur

Klst per kafla

Fjöldi kafla

Samtals

Lestur aðalkennslubókar (Gravetter et al.)

4

13,5

54

Lestur aukabókar (Schick og Vaughn)

3

8

24

Kennslustundir

Klst per viku

Fjöldi vikna

Samtals

Áhorf allra fyrirlestra

3

12

36

Þátttaka í umræðutímum

1,5

11

16,5

Þátttaka í lotu

4

1

4

Verkefni

Klst

Skipti

Samtals

Rannsóknarskýrsla

10

1

10

Smáverkefni

0,5

10

5

Heildartími fram að próflestri =

149,5

Viðmið menntamálaráðuneytisins

Per ECTS

ECTS

Samtals

Áætlaður hámarkstími per einingu

30

8

240

Afgangs fyrir próflestur og umsýslu

90,5

7 Til áminningar:

Stúdentar eru minntir á samskiptasáttmála Háskólans á Akureyri og að fylgja Siðareglum nemenda og kennara við HA. Stúdentar skulu virða reglur um ritstuld við lausn allra verkefna, í þessu námskeiði sem og öðrum. Ekki er heimilt að skila afrakstri gervigreindar sem eigin hugverki. Notkun gervigreindar í námi þarf að vera gagnsæ, þar sem skýrt er greint frá hvaða hugverk koma frá stúdentum, hvað er tilkomið með stuðningi gervigreindar og hvaða hugverk eru skálduð af gervigreind. Notkun á gervigreind, þegar hún er óheimil, og framsetning hugverka gervigreindar sem eigin verk eru ígildi ritstuldar.